Í dag munu á milli 5000 og 6000 ferðamann koma til Akureyrar með skemmtiferðaskipum en þetta lætur nærri að vera um 10% þess ferðamannafjölda sem væntanlegur er í bæinn í sumar með þessum hætti. Ferðamennirnir koma með þremur skemmtiferðaskipum, tveimur sem flokkast sem mjög stór og einu minna. Stóru skipin skiptast á að leggja að hafnarbakkanum og það sem kom í morgun mun síðan færa sig út á Poll til að rýma fyrir hinu.
Að sögn Pétur Ólafssonar skrifstofustjóra hjá Hafnasamlagi Norðurlands bjargast það að taka á móti öllum þessum fjölda en hann viðurkennir að best sé að ekki komi nema kannski tvö skip í einu. Þetta þýði mikið álag á rútur og leiðsögufólk og alla þjónustu sem verið sé að veita. Skipin sem komu í dag heita Marco Polo sem er lang minnst eða rúm 28 þúsund tonn að stærð, Arcadia, sem er tæp 83 þúsund tonn og Aurora sem er rúm 76 þúsund tonn.