Verklokum við smíði Eddu var fagnað innilega í dag. Óhætt er að segja að Beate Stormo og aðstoðarfólk hennar hafa náð að skapa glæsilegt listaverk sem mun verða til prýði um komandi framtíð. Kýrin verður kennileiti í sveitarfélaginu enda mjólkurframleiðsla þar óvíða meiri á Íslandi. Það er Ferðamálafélag Eyjafjarðarsveitar sem stóð að þessari smíði, verkið hófst snemmsumars árið 2021.
Nánar verður fjallað um verkefnið í næsta tbl Vikublaðsins.