Slökkviliði Akureyrar barst tilkynning um reyk í vélarrúmi Samherjatogarans Kristine kl. 02:30 í nótt en togarinn liggur bryggju á Akureyri. Áhöfn skipsins brást við aðstæðum af mikilli fagmennsku og voru öll viðbrögð hennar hárrétt, segir í tilkynningu frá slökkviliðinu. Um leið og reyksins varð vart var slökkt á aðalvél skipsins, gengið úr skugga um að enginn væri inni og rýminu lokað til að hindra aðgang súrefnis að því. Vélstjórar fullvissuðu sig um að enginn eldur væri í rýminu, settu á sig reykköfunartæki og fóru inn til að setja rafmang á rýmið og blásara í gang.
Þegar Slökkvilið Akureyrar kom á vettvang fengu þeir strax greinagóðar upplýsingar um ástandið og að engin eldur væri um borð og verið væri að reykræsta. Orsakavaldur er gúmmítengi sem er áfast er við rafal skipsins. Þessi vinnubrögð ásamt góðri upplýsingagjöf eins og áhöfnin sýndi hjálpar slökkviliðinu gríðarlega, því það þarf að gera ráðstafanir um hve mikinn mannskap það þarf í verkefnið og eru eldar í skipum eitt það allra erfiðasta sem slökkvilið glíma við. Ljóst er að áhöfnin er vel þjálfuð af slysavarnaskóla sjómanna og greinilegt að haldnar eru reglulegar æfingar um borð, segir ennfremur í tilkynningu.