Kona var dæmd í skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára í Héraðsdómi Norðurlands eystra í síðustu viku fyrir að
ráðast á starfsmann fjölskyldudeildar Akureyrarbæjar og hóta honum lífláti. Atburðurinn átti sér stað á
bifreiðastæði við Rósenborg fimmtudaginn 14. janúar sl.
Konan veittist að starfsmanninum þar sem hann var að sinna skyldustörfum og sló hann m.a. í andlitið, henti honum á bifreið og kastaði í
hann handfangi sem ákærða hafði rifið af hurð bifreiðinnar.