Rangur listi yfir fimmtíu hæstu gjaldendur opinberra gjalda árið 2011 var sendur út í morgun. Ríkisskattstjóri biðst velvirðingar á þessu og hefur birt nýjan lista. Á listanum sem var sendur á fjölmiðla í morgun var aðeins yfirlit yfir gjaldendur á höfuðborgarsvæðinu en það vakti athygli að enginn á landsbyggðinni var á listi yfir fimmtíu efstu. Á nýjum lista kemur hins vegar fram að fimm af landsbyggðinni eru þar á meðal, þar af þrír frá Akureyri.
Þetta eru þeir Kristján V. Vilhelmsson sem greiðir 92.026.845 kr., Þorsteinn Már Baldvinsson sem greiðir 68.248.066 kr. og Hjörtur Georg Gíslason sem greiðir 40.420.112 kr. Það er hins vegar Þorsteinn Hjaltested, Vatnsenda í Kópavogi, sem er skattakóngur Íslands og greiðir hæstu gjöldin, eða 185.366.305 kr.