Stefnt er að því að ráðherra sprengi fyrir Vaðlaheiðargöngum 12. júlí. Eftir þá sprengingu má segja að gangagerðin sé hafin af fullum krafti. Sjálfur gangaborinn er væntanlegurtil landsins í lok viknnar. Til að byrja með nægir einn bor, en þegar farið verður að bora Fnjóskadalsmegin þarf væntanlega tvo bora.
Ekki hefur verið staðfest hvaða ráðherra sprengir fyrstu hleðsluna, en ráðherra vegamála er Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra. Til þessa hafa eingöngu karlar sprengt svokallaðar ráðherrasprengjur.
Þessa dagana er meðal annars unnið að brúargerð, þannig að hægt verði með einföldum hætti að flytja í burtu það efni sem til fellur í göngunum.
karleskil@vikudagur.is