Handverkshátíðin við Hrafnagilsskóla verður haldin í 20. sinn dagana 10. 13. ágúst nk. og á sama tíma verður haldin landbúnaðarsýning á svæðinu í tilefni af 80 ára afmæli Búnaðarsambands Eyjafjarðar. Í tilefni sýninganna hefur verið blásið til samkeppni um best prýdda póstkassa sveitarinnar og hafa íbúarnir tekið virkan þátt og má nú sjá handverksprýdda póstkassa um alla sveit. Dagana 7. júlí til 10.ágúst gefst almenningi tækifæri á að velja best prýdda póstkassann en kjörkassar standa frammi hjá ferðaþjónustuaðilum sveitarinnar.