Páll Viðar gerði þriggja ára samning við Þór

Páll Viðar Gíslason, þjálfari meistaraflokks Þórs í knattspyrnu karla, skrifaði í dag undir nýjan þriggja ára samning við félagið. Páll tók við liðinu í lok maí af Lárusi Orra Sigurðssyni og kom liðinu upp í úrvalsdeild.

Unnsteinn Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, segir á heimasíðu félagsins að þetta séu mikil gleðitíðindi fyrir klúbbinn og liður í því að halda stöðugleika hjá félaginu. 

Nýjast