Skilyrði er að í verkefni sé um að ræða samstarf tveggja eða fleiri aðila og skal minnst helmingur þátttakenda vera fyrirtæki. Lögð verður sérstök áhersla á verkefni sem með einhverjum hætti tengjast eða styðja við beint millilandaflug til Akureyrar. Áfram verður horft til almennra markmiða Vaxtarsamningsins við verkefnavalið en þau eru tengsl háskóla og atvinnulífs, markaðssetning og útrás og nýsköpun og vöxtur á Eyjafjarðarsvæðinu. Verkefni sem hljóta munu samþykki hjá Vaxtarsamningi Eyjafjarðar fá allt að 50% heildarkostnaðar við þau, gegn mótframlagi annarra þátttakenda.