Öruggur sigur Akureyrar gegn Val/Þrótti

Strákarnir í 2. flokki Akureyrar Handboltafélags unnu tíu marka sigur á Val/Þrótti, 36:26, er liðin mættust í Íþróttahöll Akureyrar á Íslandsmótinu í handbolta sl. laugardag. Akureyri leiddi með fjórum mörkum í hálfleik, 18:14. Eftir sex umferðir er Akureyri á toppi deildarinnar með 11 stig.

Nýjast