Opið hús um nýtt hættumat vegna ofanflóða fyrir Akureyri

Hættumatsnefnd Akureyrarbæjar boðar til kynningar á tillögu að nýju hættumati vegna ofanflóða fyrir Akureyri. Tillagan verður kynnt á „opnu húsi" í Zontahúsinu, Aðalstræti 54, á morgun, fimmtudaginn 8. apríl kl. 16:00-19:00. Tillaga að hættumati verður sýnd á veggspjöldum og drög að greinargerð með hættumatskorti munu liggja frammi.

 

 

Fulltrúar hættumatsnefndar og sérfræðingur Veðurstofu Íslands kynna málið og svara fyrirspurnum gesta. Tillagan verður síðan aðgengileg almenningi á bæjarskrifstofu Akureyrar til föstudagsins 14.  maí 2010.

Nýjast