Rúm milljón króna safnaðist á viðburðum tengdum hátíðinni Einni með öllu sem fram fór á Akureyri um verslunarmannahelgina sem rennur beint til góðgerðamála. Viðburðurinn Pabbar og pizzur safnaði 350 þúsund krónum fyrir Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis en um nýjan viðburð er að ræða. Fyrirtæki á Akureyri gáfu allt hráefni og öll vinna og undirbúningur var gefin.
Að sögn Þorbjargar Ingvarsdóttur, framkvæmdastjóra Krabbemeinsdeildar Akureyrar og nágrennis, skiptir stuðningur við félög í heimabyggð gríðarlega miklu máli. Þar sem starfssemi okkar byggir að langmestu leyti á stuðningi almennings og fyrirtækja á félagssvæðinu er það ómetanlegt að fá framlag sem þetta, sagði Þorbjörg.
Þá safnaði viðburðurinn Mömmur og möffins um 700 þúsund krónum og rennur upphæðin til fæðingadeildar Sjúkrahússins á Akureyri.