Það verður nóg um að vera fyrir knattspyrnuþyrsta Akureyringa í kvöld en öll þrjú meistaraflokksliðin í bænum; Þór, KA og Þór/KA verða í eldlínunni. Þór/KA situr á toppi Pepsi-deildar kvenna og tekur á móti Aftureldingu kl. 18:30 á Þórsvelli. Á sama tíma leikur KA gegn Hetti á Akureyrarvelli í 1. deild karla og Þór sækir ÍR heim. Bæði Þór og KA eru í harðri baráttu um efstu tvö sætin í deildinni en liðin mætast innbyrðis á laugardaginn kemur á Þórsvelli.