Ögmundur Knútsson hefur verið ráðinn í stöðu forseta viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri frá og með 1. júlí sl. til tveggja ára. Ögmundur var einn fimm umsækjenda um stöðuna sem auglýst var laus til umsóknar í vor.
Ögmundur lauk fiskiðnaðarprófi frá Fiskvinnsluskólanum í Hafnarfirði árið 1982 og fisktækniprófi frá sama skóla árið 1984. Hann varð iðnrekstrarfræðingur frá HA 1989, lauk B.S. prófi frá gæðastjórnunarbraut HA 1993, M.S. prófi frá viðskiptadeild Háskólans í Edinborg 1996 og Ph.D. prófi frá sama skóla árið 2001. Hann hefur sinnt ýmsum störfum sem tengjast sjávarútvegi og fyrirtækjarekstri frá árinu 1981.
Árin 1994-1995 var Ögmundur lektor við rekstrardeild HA og aftur í 50% lektorsstarfi 1999-2000. Hann var framkvæmdastjóri stefnumótunar og starfsþróunar við HA árin 2000-2005 og framkvæmdastjóri Rannsóknastofnunar HA 2006-2007. Árið 2007 varð hann lektor við viðskipta- og raunvísindadeild HA og síðan 2010 hefur hann verið dósent og staðgengill forseta fræðasviðsins.