Oddviti sjálfstæðismanna segir alltaf leitt að missa liðsmenn

"Það er alveg ljóst að þegar menn  fara í prófkjör og ná ekki þeim árangri sem þeir stefna að þá skoða þeir sinn hug," segir Sigrún Björk Jakobsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, aðspurð um brotthvarf Sigurðar Guðmundssonar úr flokknum. "Það var niðurstaða kjörnefndar að bjóða viðkomandi 9. sæti á lista flokksins enda hlaut hann ekki bindandi kosningu í 6. sæti listans í prófkjörinu og það var gert fyrst og fremst til að jafna kynjahlutfall og aldurssamsetningu listans."  

"Hann kaus að taka ekki það sæti og það er hans sjálfsagði réttur. Það er alltaf leitt að missa liðsmenn, en því miður er það niðurstaða Sigurðar að þessu sinni og hans ákvörðun." Sigrún Björk segir að málanefnastaða sjálfstæðismanna sé sterk, lagður hafi verið fram langur málefnasamningur með samstarfsflokknum í upphafi kjörtímabilsins og að nær öll verkefni séu komin til framkvæmda.   
"Málefnavinna flokksins hófst í nóvember sl. en þá voru kallaðir til vinnu yfir 100 bæjarbúar sem lögðu sitt af mörkum í sarpinn fyrir komandi kosningar. Á því munum við byggja okkar vinnu ásamt áherslum frambjóðendanna sjálfra, þriggja ára áætlun bæjarins og hinum fjölmörgu stefnum Akureyrarbæjar sem eru lagðar til grundvallar áherslum bæjarins hverju sinni. Við stefnum að því að heyja öfluga og heiðarlega kosningabaráttu og væntum hins sama af hinum framboðunum," segir Sigrún Björk.

Nýjast