Oddur Gretarsson í HM hópnum

Oddur Gretarsson er einn af 17 leikmönnum sem Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur valið til þátttöku á HM í handbolta sem hefst í Svíþjóð næstkomandi fimmtudag. Þeir leikmenn sem ekki fara með eru markvörður Akureyrar, Sveinbjörn Pétursson og Sturla Ásgeirsson frá Val. 

HM-hópur Íslands lítur þannig út:

Markmenn:
Björgvin Páll Gústavsson, Kadetten
Hreiðar Leví Guðmundsson, Emsdetten

Vinstri hornamenn:
Guðjón Valur Sigursson, Rhein-Neckar Löwen
Oddur Gretarsson, Akureyri

Vinstri skyttur:
Arnór Atlason, AG Kaupmannahöfn
Sigurbergur Sveinsson, Rheinland

Leikstjórnendur:
Aron Pálmarsson, Kiel
Snorri Steinn Guðjónsson, AG Kaupmannahöfn

Hægri skyttur:
Ólafur Stefánsson, Rhein-Neckar Löwen
Alexander Petersson, Fücshe Berlin
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Hannover-Burgdorf

Hægri hornamenn:
Þórir Ólafsson, Lübbecke

Línumenn:
Róbert Gunnarsson, Rhein-Neckar Löwen
Vignir Svavarsson, Hannover-Burgdorf
Kári Kristján Kristjánsson, Wetzlar

Varnarmenn:
Ingimundur Ingimundarson, AaB Álaborg
Sverre Jakobsson, Groswallstadt

Liðið heldur til Svíþjóðar miðvikudaginn 12. janúar en fyrsti leikur liðsins er gegn Ungverjum föstudaginn 14. janúar.

Nýjast