Nýr deildarstjóri Eyjafjarðardeildar Rauða krossins

Sigurbjörg Rún Jónsdóttir hefur tekið við stöðu deildarstjóra Eyjafjarðardeildar Rauða krossins
Sigurbjörg Rún Jónsdóttir hefur tekið við stöðu deildarstjóra Eyjafjarðardeildar Rauða krossins

Sigurbjörg Rún Jónsdóttir hefur tekið við stöðu deildarstjóra Eyjafjarðardeildar Rauða krossins. Sirrý, eins og hún er jafnan kölluð, mætti til starfa í höfuðstöðvum deildarinnar í Viðjulundi 2 á Akureyri í dag. „Ég hlakka til að kynnast öllum sjálfboðaliðum og starfsfólki deildarinnar og halda áfram að byggja upp það mikilvæga starf sem deildin sinnir á Norðurlandi,“ segir Sirrý.

Sirrý er 57 ára og alin upp á Akureyri. Hún er með BA-gráðu í íslensku, meistaragráðu í mannauðsstjórnun og er einnig markþjálfi. Áður starfaði hún sem verkefnastjóri hjá Háskólanum á Akureyri.

Auk Sirrýjar starfa sjö á skrifstofu Eyjafjarðardeildar Rauða krossins, flest í hlutastarfi. Sjálfboðaliðar deildarinnar voru 382 í árslok 2025 og hafa þeir aldrei verið jafnmargir.

Starfslið og sjálfboðaliðar sinna mörgum og fjölbreyttum verkefnum á Eyjafjarðarsvæðinu. Má þar nefna söfnun, flokkun og sölu á notuðum fatnaði, vinaverkefni sem miða að því að rjúfa einangrun fólks, stuðning við flóttafólk, skaðaminnkandi verkefni og málsvarastarf fyrir jaðarsetta hópa.

Nýjast