Ný stjórn var kosin á aðalfundi Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrenni sem haldinn var nýlega. Selma Dögg Sigurjónsdóttir formaður og Arna Jakobsdóttir varaformaður gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Pétur Þór Jónasson, formaður
Inga Bára Ragnarsdóttir, varaformaður
Hólmar Erlu Svansson, gjaldkeri
Þórunn Sif Héðinsdóttir, ritari
Guðmundur Karl Jónsson, meðstjórnandi
Maron Björnsson, meðstjórnandi
Hafdís Sif Hafþórsdóttir, meðstjórnandi
Sólveig Hulda Valgeirsdóttir, 1. varamaður
Jón Helgi Óskarsson, 2. varamaður
Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að öll þau sem sitja í stjórninni hafi á einn eða annan hátt upplifað þá óvissu og það óöryggi sem fylgir í kjölfar greiningar á krabbameini.
„Á síðastliðnu starfsári vann fyrri stjórn markvisst að því að styrkja starfsemi félagsins og efla þjónustu þess. Ný stjórn mun í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands halda áfram á þeirri braut að veita sem besta þjónustu og ráðgjöf við þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra, ásamt því að standa fyrir margháttaðri fræðslu,“ segir í tilkynningunni.
Horft sé til þess að spár geri ráð fyrir mikilli fjölgun krabbameinstilfella á komandi árum. Lögð verði áhersla á að kynna starfsemi félagsins og þá fjölbreyttu þjónustu sem veitt er á vettvangi þess ásamt því að eiga samstarf við aðra mikilvæga þjónustuaðila á svæðinu s.s. Sjúkrahúsið á Akureyri. „Sú mikla velvild sem félagið nýtur í samfélaginu er stjórninni hvatning í störfum sínum,“ segir í tilkynningunni.