Ný sending af bóluefni væntanleg í næstu viku

Ný sending af bóluefni vegna svínaflensunnar kemur á Heilsugæslustöðina á Akureyri á fimmtudag í næstu viku, 17. desember. Þórir V. Þórisson farsóttarlæknir í Eyjafirði segir að með þeim skammti sem þá berst til heilsugæslunnar verði hægt að bólusetja í nokkra daga.  

Þeir sem hafi átt bókaða tíma í bólusetningu þurfi  að huga að breyttum tímasetningum vegna þessa, þannig eru þeir sem áttu tíma 1. desember sl. beðnir að koma til bólusetningar 22. desember. Þórir segir að næsta   sending af bóluefni sé  væntanleg eftir áramót, eða 6. janúar. Tekið verður á móti nýjum tímapöntunum eftir miðjan janúar.

Nýjast