Stórt gróðurhús er nú risið í starfsstöð Lands og skógar í Vaglaskógi. Húsið er viðbót við eldra hús nýtt hefur verið undanfarna áratugi í kynbótastarf á vegum stofnunarinnar og fyrirrennara hennar.
Nýja fræhúsið er stærra en hið eldra, tæpir hundrað metrar að lengd og 16,5 metrar á breidd eða 1.636 fermetrar. Þetta er stálgrindarhús sem klætt er með sextán millimetra einangrandi pólíkarbónat-plasti. Í því er hefðbundin hitastýring og loftun með sjálfvirkum gluggum í mæni. Húsið er sérstaklega hannað til að þola snjóþyngsli sem gjarnan verða mikil í Vaglaskógi.

Húsið er viðbót við eldra hús sem nýtt hefur verið undanfarna áratugi í kynbótastarf á vegum stofnunarinnar og fyrirrennara hennar.
Aðlögun skóga að loftslagsbreytingum
Valgerður Jónsdóttir teymisstjóri plöntu- og fræmála hjá Land og Skógi segir að nýja fræhöllin verði á næstu árum einkum nýtt undir framleiðslu á lerkiblendingnum Hrym hvað svo sem verði í framtíðinni. „Þessi tvö hús munu nýtast stofnuninni í ýmis verkefni tengd kynbótum og tilraunum. Kynbætur gegna mikilvægu hlutverki í aðlögun skóga að loftslagsbreytingum og stjórnvöld sýndu því sem betur fer skilning að Land og Skógur þyrfti slíka aðstöðu til að sinna þeim brýnu verkefnum sem stofnuninni er ætlað að sinna,“ segir hún.
Kynbótaverkefnið sem leiddi af sér lerkiblendinginn Hrym hófst árið 1993 undir stjórn skógarerfðafræðingsins Þrastar Eysteinssonar. Markmiðið var að velja úrvalstré af Rússalerki og Evrópulerki sem höfðu sýnt framúrskarandi eiginleika á Íslandi. Fyrsta víxlunin fór fram árið 1996 og árið 1999 voru plönturnar settar í afkvæmatilraunir. Nafnið Hrymur er sótt í jötuninn Hrym úr Völuspá. Á undanförnum árum hefur verkefnið verið þróað enn frekar með vali á nýjum úrvalseinstaklingum sem foreldrum.
Hrymur er blendingur sem sameinar kosti rússa- og evrópulerks en er laus við þeirra helstu galla í íslenskri ræktun. Hann reynist sérstaklega vel á svæðum á Suður- og Vesturlandi, þar sem hefðbundin lerkirækt hefur átt undir högg að sækja vegna óstöðugs vetrarveðurs. Vegna eiginleika sinna þolir Hrymur betur sveiflur sem annars gætu valdið því að trén vakni ótímabærlega af vetrardvala og verði fyrir skemmdum í síðvetrarfrostum.

Nýja fræhúsið er stálgindahús. Það er stærra en hið eldra, tæpir hundrað metrar að lengd og 16,5 metrar á breidd eða 1.636 fermetrar
Fræframleiðsla mun margfaldast
„Það var brýn þörf á að auka rými til fræframleiðslu á Hrym og til að stunda annað tilraunastarf. Líftími frætrjáa í gróðurhúsi er ekki mjög langur og því nauðsynlegt að endurnýja hluta af trjánum í eldra húsinu,“ segir Valgerður og bendir á að eldra húsið sé að verða 30 ára gamalt og því komið að því að sinna viðhaldi og endurnýjun á plastklæðningu þess. „Með tilkomu nýja hússins verður auðveldara að sinna nauðsynlegum endurbótum á eldra húsinu og endurnýjun á elstu trjánum. Auk þess sem fræframleiðsla mun margfaldast á næstu árum.“
Valgerður segir að hvergi annars staðar í heiminum sé stunduð fræframleiðsla á lerki í gróðurhúsum. Finnar og Svíar búi yfir langri reynslu af fræframleiðslu og kynbótum á birki í gróðurhúsum. Á síðustu árum hafi áhugi í þessum löndum á ræktun lerkis aukist mjög. „Nýverið komu finnskir kynbótasérfræðingar í heimsókn á Vagli til að skoða fræframleiðsluna á Hrym hér í gróðurhúsinu, en þeir hafa áhugi á að byggja upp fræframleiðslu á lerki í gróðurhúsum líkt og gert er með birki,“ segir Valgerður.