17. desember, 2010 - 18:06
Margir nemendur og starfsmenn Menntaskólans á Akureyri voru mjög ósáttir með frammistöðu hljómsveitarinnar Ný danskrar á
árshátíð skólans á dögunum. Eins og fram hefur komið í fréttum var kvartað undan tveimur meðlimum hljómsveitarinnar og
þeir sagðir hafa verið undir einhvers konar áhrifum á sviðinu. Í tölvupósti frá stjórn nemendafélags MA til nemenda í
dag, kemur farið hafi verið fram á afslátt á kostnaði við hljómsveitina og hafi það verið samþykkt.
Fram kemur í tölvupósti stjórnar nemendafélagsins að hljómsveitin hafi strax viðurkennt mistök sín og samþykkt afslátt sem
nemur um fullum launum tveggja hljómsveitarmeðlima. "Þeir biðjast einnig innilegrar afsökunar á framkomu sinni. Við teljum málinu þar með
lokið og vonum að allir séu sáttir við niðurstöðuna," segir ennfremur.