Niðurskurði í í heilbrigðis- þjónustu á landsbyggðinni mótmælt

Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var samþykkt bókun, þar sem ráðið mótmælir harðlega þeim fyrirhugaða niðurskurði í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni sem boðaður er í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2011. Furðu vekur að um 70% af niðurskurðinum á sér stað utan höfuðborgarsvæðisins.  

Niðurskurður sem boðaður er gagnvart heilbrigðisstofnunum á Norðurlandi er gróf aðför að búsetuskilyrðum á svæðinu og mun hafa víðtæk áhrif á lífsskilyrði þar, segir ennfremur í bókun bæjarráðs.

Nýjast