Það er búið að vera ágætt að gera undanfarið. Það er bæði mikið pantað og svo er fólk að detta inn af götunni, segir Sigfús Jónsson kokkur og einn af eigendum Goya Tapas bar í Listagilinu á Akureyri. Staðurinn bíður upp á allskyns rétti með spænsku ívafi. Fáir staðir á Akureyri státa af jafn fjölbreyttum matseðli en á Goya er hægt að velja um eina 60 rétti.
Við erum svolítið sértækir líka þar sem við bjóðum upp á öðruvísi mat. Svo er einnig hægt að panta sér marga litla rétti, svokallaða tapas rétti, þá getur fólk bragðað á mörgu í einni kvöldmáltíð, segir Sigfús. Hann segir naut í karamellu með timían, chilli og hvítlauk hafa slegið í gegn hjá Akureyringum.
Þetta er lang vinsælasti rétturinn á matseðlinum og hefur fallið vel í kramið hjá gestum. Ég myndi halda að níu af hverjum tíu sem koma hingað inn panti sér þennan rétt. Af öðrum vinsælum réttum á staðnum má nefna beikonvafðar döðlur með sætri chillisósu, grafna gæs og eyfirska hráskinku.
Hörð samkeppni
Sigfús hefur verið kokkur í um tuttugu ár. Hann flutti heim til Akureyrar fyrir tveimur árum eftir áralanga dvöl í höfuðborginni og hóf fljótlega rekstur á Goya Tapas.
Miðað við átján þúsund manna bæjarfélag að þá er svakaleg flóra af veitingahúsum á Akureyri. Samkeppnin er fyrir vikið gríðarlega hörð en það er vonandi að flestir af þessum veitingastöðum nái að standa undir sér og veitingabransinn á Akureyri haldi áfram að blómstra, segir Sigfús. Veitingastaðir bæjarins munu eflaust njóta góðs af vaxandi vinsældum í vetrarferðamennsku á Norðurlandi en m.a. er von á fimmta þúsund ferðafólks í norðurljósaferðir í vetur.
Svo fer skíðafólkið að koma norður upp úr miðjum janúar þannig að veturinn lítur þokkalega út.