Náttúrusetur á Húsabakka í Svarfaðardal formlega stofnað

Náttúrusetur á Húsabakka í Svarfaðardal var formlega stofnað í vikunni. Jafnhliða var sett á fót sjálfseignarstofnun um reksturinn en í henni eiga fjórir aðilar stofnhlut. Það eru: Hollvinafélag Húsabakka, Dalvíkurbyggð, KEA og Sparisjóður Svarfdæla.  

Í þriggja manna stjórn eiga sæti; Trausti Þórisson f.h. Hollvinafélagsins, Hildur Ösp Gilfadóttir f.h. Dalvíkurbyggðar og Haukur Snorrason f.h. KEA en varamenn eru Jónas Pétursson sparisjóðsstjóri og Jóhann Ólafsson bæjarfulltrúi í Dalvíkurbyggð. Með náttúrusetrinu er hugmyndin að blása nýju lífi í skólahúsnæðið á Húsabakka sem hefur staðið vannýtt frá því  regluleg skólastarfsemi lagðist af árið 2005 og tengja það  Friðlandi Svarfdæla sem einnig hefur að mörgu leyti verið vannýtt auðlind í Svarfaðardal. Gert er ráð fyrir fjölþættri starfsemi við náttúrusetrið á þrem meginstoðum: Skólabúðir með áherslu á umhverfisfræðslu, og  umhverfisvernd. Fræðasetur með aðstöðu fyrir fræðimenn og háskólahópa og í þriðja lagi ferða og ráðstefnumiðstöð. Þá er einnig unnið að undirbúningi sýningar og Friðlandið og fuglana.

Undanfarið ár hefur verið unnið að undirbúningi  stofnunarinnar og lagður grunnur að starfseminni s.s. með átaki í málum  Friðlands Svarfdæla, gerð fræðimannsíbúðar, námsferðum fyrir skólahópa, fræðslufundum fyrir almenning, tengingum við háskólastofnanir og fleiru.

Nýjast