Nafni Laufáshópsins breytt í Handraðann á aðalfundi

Á aðalfundi Laufáshópsins nýlega var nafni félagsins breytt í Handraðann, eins og kosið var um fyrir ári. Engu öðru hefur verið breytt og hópurinn að öllu leiti samur. Félagið vinnur að því að viðhalda íslenskum þjóðháttum liðinna alda, að leita þekkingar um forna starfshætti og miðla henni áfram, taka þátt í starfsdögum safna á svæðinu og standa fyrir námskeiðshaldi, fræðslufundum og fleiru.  

Félagið heitir nú Handraðinn með Laufáshópinn, Miðaldahópinn og hinar ýmsu nefndir innanborðs. Áherslan er lögð á tímabilið sem Laufásbærinn var síðast í byggð þ.e. 1900-1930 og miðaldir, seinni tíma þess tímabils er búðir voru settar upp að Gásum á sumrin. Laufáshópsurinn kemur fram á starfsdögum í Laufási og líkir eftir lífinu í bænum eins og það var á fyrri hluta 20. aldarinnar og Miðaldahópurinn starfar á Gásadögum með því að setja búðir upp á Gásum og skapa andrúmsloft sem líkast því sem var í Gásakaupstað á miðöldum.  Þessir hópar og Handraðinn (eins og Laufáshópurinn áður) taka  þátt í hinum ýmsu viðburðum eins og áður, s.s. Handverkshátíðinni að Hrafnagili, heimsækja Sænautasel, taka þátt í starfi Minjasafnsins, halda námskeið, fara á námskeið, heyannir við Akademíuna, Víkingahátíðinni í Hafnafirði, svo eitthvað sé nefnt. Ekkert hefur breyst.
Nefndir verða áfram starfandi og stofnaðar, s.s. fatanefnd, matarnefnd, laufabrauðsnefnd, ferðanefnd, fræðslunefnd, heyannnanefnd og spunanefnd.

Nýjast