Myrk fantasía

Elís Freysson gluggar í nýjustu bók sína, Ógnarmána. Mynd/Þröstur Ernir.
Elís Freysson gluggar í nýjustu bók sína, Ógnarmána. Mynd/Þröstur Ernir.

„Mannkyn má aldrei gleyma að Dauðaherrarnir hafa ekki verið endanlega sigraðir. Þeir bíða bara, eins og þeir hafa ávallt gert. Bíða, og safna kröftum. Bíða, og taka við eiðum frá nýjum þjónum sem vilja gangast myrkrinu á hönd. Bíða þess að aðstæður í mannheimum séu þeim í hag.“

Svona hljóðar lýsing á nýjustu bók rithöfundarins Elí Freyssonar, Ógnarmána, sem er komin í verslanir. Bókin er sjálfstætt framhald af Meistara hinna blindnu sem Elí gaf út í fyrra. Hann lýsir Ógnarmána sem er myrkri fantasíu en óhætt er að segja að Elís feti ótroðnar slóðir í íslenskum bókmenntaskrifum.

„Það hefur ekki verið skrifað mikið um fantasíu ævintýri hér á landi og útgefendur hafa því verið hikandi,” segir hann, en bókin er gefin út af emmu.is. Bókin er fáanleg í verslunum Eymundsson en einnig er hægt að nálgast hana á rafrænu formi og á kilju á www.emma.is.

Fleiri bækur á döfinni

Elí segir erfitt að hasla sér völl sem rithöfund hér á landi, sérstaklega ef efnið er ekki hefðbundin glæpasaga sem njóta hvað mestra vinsælda. Það tók Elí sjö ár að koma út sinni fyrstu bók og hann situr ekki auðum höndum því hann er nú þegar að ljúka við sínu fjórðu bók. „Ég er einnig kominn með hugmyndir og efni í næstu þrjár bækur þannig að ég hef nóg að gera.”

 

throstur@vikudagur.is

Nýjast