Sigurður Guðmundsson eigandi The Viking ferðamannaverslana segir ekkert hæft í því verslun hans og Álafoss séu að stela hugmynd að útliti að vörum Drífu ehf., sem framleiðir vörur undir vörumerkjunum Icewear og Norwear. Í frétt á Vikudegi.is í morgun vildu forsvarsmenn Drífu vekja athygli á viðskiptaháttum verslananna The Viking og Álafoss, sem nýverið hófu sölu á ullarvörum sem svipar mjög til ákveðinna vara Icewear og Norwear. Forsvarsmenn Drífu telja ólíklegt að tilviljun ein ráði för, enda hafa þessar vörur fyrirtækisins notið mikilla vinsælda. Að þeirra mati er um að ræða atlögu að íslenskri hönnun.
Maður sem telur sig hafa fundið upp húfuna og vettlinginn ætti aðeins að staldra við og helst fá birta mynd af sér sem víðast". Því það eru stórtíðindi. Maðurinn sem fann upp hjólið er ófundinn en gott að hugmyndasmiður vettlingsins og húfunnar skuli vera fundinn. Mynstrið er sígilt og til í hundruðum afbrigða og er kennt við áttablaða rósina. Hið ágæta norðlenska fyrirtæki Glófi hefur t.d. notað þetta mynstur í áratugi, segir Sigurður.