Minnkandi umferð á norðulandi

Mun minni umferð var á hringveginum í nýliðnum júlí en undanfarin ár og hefur minni umferð ekki mælst síðan árið 2006 í sextán mælisniðum Vegagerðarinnar. Umferðin í júlí reyndist 2,4 prósentum minni í ár en í sama mánuði í fyrra. Mest munar um samdrátt á Norðurlandi sem er tíu prósent, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Umferð um Norðurland frá áramótum dregst saman um 4,2 prósent. Þetta er heldur meiri samdráttur en gert var ráð fyrir.

„Þetta er heldur mikið en umferð um Norðurland virðist vera að gefa töluvert eftir,” segir Friðleifur Ingi Brynjarsson verkefnastjóri hjá Vegagerðinni. „Ég átta mig ekki alveg á þessum skelli sem Norðurland er að fá núna. Manni finnst eins og botninum sé náð. Þessi samdráttur frá áramótum er svipaður og árið 2010 sem var metár hvað samdrátt varðar,” segir Friðleifur. Hann segir erfitt að benda einhverja eina skýringu en þarna tvinnist margir hlutir saman, t.d. atvinnumál og bensínverð. Júlímánuðurinn núna hafi verið óvenju slakur og ekki virðist vera mikill akstur í kortunum í ár um hringveginn. „Það eru bara árin 2005 og 2006 þar sem umferðin var minni á því tímabili sem við erum að skoða,” segir Friðleifur.

Mest eykst umferðin um Austurland frá áramótum eða um tæp fimm prósent, en umferð um það svæði hafði dregist mikið saman árin 2011 og 2010 á þessum árstíma. Umferð virðist einnig að vera að aukast um Suðurland eftir mikinn samdrátt á því svæði árið 2011 en milli júlímánaða jókst umferðin mest á því svæði eða um 5,7 prósent. Friðleifur segir ennfremur að ýmislegt fleira en bara akstur megi lesa úr þessum tölum.

„Ef menn segja sem svo að umferð sé góð vísbending um hvernig Ísland hafi það í dag að þá virðumst við ekkert vera á leiðinni upp. Umferðatölur þykja góðar til þess að lýsa því hvernig staðan er hverju sinni í þjóðfélaginu. Miðað við þessar tölur virðumst við því vera að svamla á botninum ennþá. En það verður spennandi að sjá hvað gerist á næsta ári og hvort við förum ekki að horfa upp á betri tíma,” segir Friðleifur.

Nýjast