Kristinn segir að menn hafi í fyrrahaust gert sér vonir um að sumarið 2010 yrði jafn gott og jafnvel betra enda benti þá margt til að svo yrði. Eldgos í Eyjafjallajökli á fyrri hluta árs hafi augljóslega sett sitt strik í reikninginn og margir erlendir ferðamenn hætt við Íslandsför í kjölfar þess. „Það voru bara sýndar myndir af svörtu landi og látið í veðri vaka að hér væri eymdarástand. Orð forsetans um að annað gos og síst minna gæti verið í vændum hjálpaði svo ekki til. Það var algjört stopp í bókunum á ákveðnum tíma í vor," segir Kristinn.
Hann segir að sumarið hafi þó að mörgu leyti verið ágætt og ekki fyllilega sanngjarnt að bera það saman við sumarið á undan. Haustið hefur að sögn Kristins verið gott, þokkalegt að gera eins og hann orðar það og þá er hann bjartsýnn á að veturinn verði ágætur. „Vinsældir Hlíðarfjalls skipta miklu og eru mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Hér var mikið af fólki á ferðinni í tengslum við skíðaferðir og við eins og aðrir nutum þess í auknum viðskiptum. Ef veðrið verður til friðs er ég bjartsýnn á að veturinn verði góður," segir Kristinn.