Það er skammt stórra högga á milli hjá leikmönnum Þórs í knattspyrnu þessa dagana. Þór lék sinn fyrsta Evrópuleik sl. fimmtudag og náði þá hagstæðum úrslitum, eða markalausu jafntefli, gegn írska liðinu Bohemian FC í Dublin. Liðin mætast aftur á Þórsvellinum nk. fimmtudag, þegar Þór leikur sinn fyrsta heimaleik í Evrópudeildinni. Þórsarar hafa aðeins misst flugið í 1. deildinni eftir góða byrjun, þar sem liðið situr í 4. sæti, eftir átta umferðir. Í kvöld kl. 18.30 leikur Þór gegn Fjölni í 1. deildinni á Fjölnisvelli og með sigri getur Þór náð Fjölnisliðinu að stigum og skotist upp um eitt sæti. Fjölnir, sem er í 2. sæti deildarinnar, getur aftur skotist á toppinn með sigri í kvöld.
KA, sem er í 10. sæti 1. deildar á hins vegar erfiðan leik fyrir höndum í Ólafsvík nk. föstudagskvöld, þegar liðið sækir Víking Ó heim en Ólafsvíkingar eru í efsta sæti deildarinnar. KA fær svo BÍ/Bolungarvík í heimsókn á Akureyrarvöll á þriðjudagskvöld í næstu viku en á sama tíma sækir Þór Hött á Egilsstöðum heim.