Miðaldadagar á Gásum hefjast í dag

Miðaldadagar á Gásum hefjast í dag föstudag og standa fram á sunnudag.  Gásir eru við Eyjafjörð, 11 km fyrir norðan Akureyri. Á Miðaldadögum er reynt að endurskapa hið litríka mannlíf sem blómstraði á 13. og 14. öld, en þá voru Gásir mesta umskipunarhöfn landsins og heilt þorp reis þar á hverju sumri. Kaupmenn komu siglandi ótrúlega víða að, flytjandi nauðsynjar en ekki síður munaðarvöru og tískuvarning. Á Gásum er iðandi markaðstorg og lifandi handverk, vígamenn ganga um og efna til illinda, munkar tuldra latínubænir og börnin æfa sig í því að skjóta í mark með boga og örvum.

Í vikunni var sjósettur miðaldabátur smíðaður með því lagi sem var algengt á 14. öld og verður efnt til samkeppni um heiti á bátinn. Lagðir hafa verið göngustígar um svæðið sem auka aðgengi að fornleifasvæðinu og skapa mjög fallega gönguleið um svæði sem áður var býsna torfært. Miðaldadagar standa föstudag, laugardag og sunnudag kl. 11-18.

 

 

Nýjast