Menningarráð Eyþings úthlutaði 23 milljónum til menningarstarfs

Menningarráð Eyþings úthlutaði 23 milljónum króna til menningarstarfs á starfssvæði Eyþings við hátíðlega athöfn í menningarhúsinu Bergi á Dalvík sl. fimmtudag. Þetta er í sjötta  sinn sem úthlutað er styrkjum samkvæmt samstarfssamningi mennta- og menningarmálaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og sveitarfélaga í Eyþingi um menningarmál. Menningarráðinu bárust alls 127 umsóknir um tæpar 74 milljónir króna.  Til ráðstöfunar voru um 23 milljónir króna og hlutu 71 verkefni  styrk.   

Ávörp fluttu Björn Ingimarsson formaður Menningarráðs Eyþings og Stefán Arngrímsson fyrir hönd RARIK en undirritaður var samstarfssamningur um að RARIK verði aflvaki menningar í Eyþingi árið 2010.  Auk þeirra  voru viðstaddir styrkþegar menningarráðs, sveitarstjórnarmenn og gestir. 

Menningarráðið leggur jafnan áherslu á að þau verkefni sem hljóta styrki efli á einhvern hátt samstarf og/eða samvinnu í menningarmálum á Norðausturlandi eða dragi fram menningarleg sérkenni svæðisins.   Áherslur við úthlutun þessa árs eru meðal annars verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum, listnema og leikmanna, verkefni sem hvetja til samvinnu ólíkra þjóðarbrota í samstarfi við Íslendinga, verkefni sem efla þekkingu og fræðslu á sviði menningar og lista og verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista.

Hæsta styrkinn hlaut  sameiginlegt markaðsátak safna og sýninga á Eyþingssvæðinu.  Að verkefninu standa 30 aðilar innan tveggja safnaklasa, Safnaklasa Eyjafjarðar og Safnaþings.   Með verkefninu verður sköpuð heildstæð og sameiginleg ímynd safna á svæðinu með því að gefa út kynningarrit.  Ritinu er ætlað að vekja áhuga og ýta undir aukinn straum ferðamanna til svæðisins. Með þessu framtaki er einnig verið að skapa sameiginlega vitund samfélagsins gagnvart söfnunum og verður hvatning fyrir íbúa til að  heimsækja söfnin og njóta þess sem er í heimabyggð.

Eftirtalin verkefni hlutu styrk að þessu sinni:

1

Aðventa - á slóð Bensa

Mývatnsstofa

2

AIM Festival tónleikar 2010

AIM festifal á Akureyri

3

Barokkbíllinn

Barokksmiðja Hólastiftis

4

Blússkólinn í Ólafsfirði - Bryggjublús

Jassklúbbur Ólafsfjaðrar

5

Börn fyrir börn

Samstarfshópur um eflingu menningarstarfs barna á Akureyri

6

Dagskrá tileinkuð Jóni Trausta

Áhugafólk um að halda á lofti minningu Jóns Trausta

7

Dansað um Ísland

Dansfélagið Vefarinn

8

Dansert 2010

Anna Richardsdóttir

9

Einleikarar og kammersveit

Eyþór Ingi Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir

10

Ég man þegar....

Öldrunarheimili Akureyrar í samvinnu við Akureyrarstofu og Stíl

11

Fagurt er í Fjörðum

Gísl - kvikmyndagerð

12

Fjarsjóður - Eyfirskir ljósmyndarar 1858-1965

Minjasafnið á Akureyri

13

Fornleifar segja söguna

Hið Þingeyska fornleifafélag og Fornleifastofnun Íslands ses Norðurlandi

14

Fornleifaskóli barnanna, undirbúningur að samstarfi við fleiri grunnskóla

Fornleifaskóli barnanna

15

Forystufé á Norðausturlandi

Oddný E. Magnúsdóttir

16

Frón Tónlistarfélag

Polarfonia Classics ehf

17

Frumefnin flakka

George Hollanders

18

Fræðasetur um forystufé

Áhugamannahópur um stofnun Fræðaseturs um forystufé

19

Föstudagsfreistingar

Tónlistarfélag Akureyrar

20

Grænlensk menningarvika barna og unglinga í Fjallabyggð

Sveitarfélagið Fjallabyggð

21

Handverksnámskeið í Grímsey

Gallerí  Sól

22

Heitir fimmtudagar

Jazzklúbbur Akureyrar

23

Hvað má menning kosta? Málþing um menningu sem hluti af opnunardagskrá Hofs

Menningarfélagið Hof og Tónlistarskólinn á Akureyri

24

Hönnun og prentun veggspjalda á Ljóðasetur

Félag um Ljóðasetur Íslands

25

Kórahátíði í Hofi, opnunardagskrá Hofs

Menningarfélagið Hof og fl.

26

Kórastefna við Mývatn 2010

Kórastefna við Mývatn ehf

27

Kvæðamenn við Eyjafjörð miðla þjóðlagaarfinum og rímnahefðinni

Kvæðamannafélagið Gefjun

28

Landnámsdagskrá - í tilefni af því að 1100 ár eru frá landnámi Svarðardals og Dalvíkur

Svarfdælskur mars, menningarhátíð

29

Langanes Artisphere

Ytra Lón ehf

30

Leiklistarnámskeið hjá félagsmiðstöðinni Gryfjunni á Grenivík

Félagsmiðstöðin Gryfjan

31

Let´s talk local - Húsavík

Kraðak ehf og Gamli Baukur

32

List án landamæra, listahátíð 2010

List án landamæra

33

Listasumar 2010 Akureyri og allt um kring

Menningarmiðstöðin í Listagili

34

Litla ljóðahátíðin

Lilt ljóða hámerin

35

Ljóðahátíðin Glóð

Ungmennafélagið Glói

36

Málþing og kynning á verkefninu "RUNA - Rannsóknir í upphafi nýrrar aldar"

Akureyrarakademían

37

Menning í Þingeyjarsveit

Þorgeirskirkja og Þingeyskur sagnagarður

38

Menningarstefna Akureyrarbæjar / Eru skólarnir skapandi?

Myndlistarfélagið á Akureyri

39

Miðlun á menningartengdri ferðaþjónustu - jólasveinarnir í Dimmuborgum

Oddur Bjarni Þorkelsson

40

Minnisvarði um Kristján frá Djúpalæk

Langanesbyggð

41

Norrænir handverksdagar

Norræna félagið á Akureyri

42

Ný íslensk kóratónlist

Kammerkór Norðurlands

43

Opnunardagskrá Hofs, Tónleikar unga fólksins

Menningarfélagið Hof og fl.

44

opnunarhátíð MMÞ

Menningarmiðstöð Þingeyinga

45

Prjóna 17 km. Langan trefil á milli miðbæjarhluta Fjallabyggðar

Fríða Gylfadóttir

46

Rauðanesdagur

Bjarnveig Skaftfeld

47

Réttardagur 50 sýninga röð

Aðalheiður Eysteinsdóttir

48

Rithöfundarkvöld í Þingeyjarsýslum

Menningarmiðstöð Þingeyinga í samstarfi við Langanesbyggð

49

Safnasafnið 15. ára

Safnasafnið - Alþýðulistasafn Íslands

50

Sameiginlegt  markaðsátak safna og sýning á Eyþingssvæðinu. Útgáfa kynningarefnis

Safnaklasi Eyjafjarðar og Safnaþing

51

Samstarf um miðaldanámskeið

Gásakaupstaður ses

52

Shanghai akademiet

Félagsmiðstöðvarnar á Akureyri, Dalvíkurbyggð, Norðurþingi og Ólafsfirði

53

Sjónlistarnámskeið í Langanesbyggð

Sveitarfélagið Langanesbyggð

54

Skólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

55

Skrokkar

Anna Richardsdóttir

56

Sólstöðuhátíð í Grímsey

Kvenfélagið Baugur og Grímseyjarvinir á meginlandinu

57

Stuttmyndafestivalið Stulli

Akureyri og Langanesbyggð

58

Sögusetur Bakkabræðra

Kristín A Símonar og Bjarni Gunnarsson

59

Söguslóð: miðbær- innbær

Akureyrarstofa

60

Sögusýning í húsi Hákarla Jörundar

Ferðamálafélag Hríseyjar

61

Söngvökur í Tjarnarkirkju

Kristjana og Kristján Tjörn Svarfaðardal

62

Tónleikaröð Tónlistarfélags Dalvíkur

Tólistarfélag Dalvíkur

63

Uppskeruhátíð ræktunar og myndlistar

Guðrún Pálína Guðmundsdóttir

64

Veðurdraumar eldri borgara í Eyþingi

Draumasetrið Skuggsjá

65

Verksmiðjan á Hjalteyri

Verksmiðjan Hjalteyri

66

Viðburðir í Leikhúsinu á Möðruvöllum

Amtmannssetrið á Möðruvöllum

67

Vitið þér enn eða hvað  - samtal um rætur

Mardöll - félag um menningararf kvenna

68

Þingeysk og þjóðleg minjagripaframleiðsla

Samstarfshópur um þingeyska minjagripaframleiðslu

69

Þingeyskur sögugrunnur

Menningarmiðstöð Þingeyinga

70

Þjóðlagahátíðin á siglufirði 7.-11 júlí 2010

Þjóðlagahátíðin á Siglufirði

71

Þjóðleikur á Norðurlandi

Þjóðleikur á Norðurlandi

Nýjast