Marka þarf framtíðarskipulag sorphirðu

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur samþykkt tvö erindi frá Flokkun og Moltu, en annars vegar var óskað eftir viðbótarhlutafé frá Eyjafjarðarsveit í Moltu ehf. að upphæð rúmlega 2 milljónir króna og hins vegar að sveitarfélögin sem standa að Flokkun veiti stjórn fyrirtækisins heimild til að ábyrgjast lán til Moltu að upphæði 160 milljónir króna.  

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar bókaði í tilefni af áðurnefndum erindum að marka þyrfti framtíðarskipulag sorphirðu og hvernig standa eigi að meðhöndlun úrgangs. "Brýnt er að ákvörðun byggi á kostnaðar- og hagkvæmigreiningu til lengri tíma.  Með því verði kostnaði sveitarfélaganna haldið í lágmarki og rekstur þessara fyrirtækja gerður eins hagkvæmur og mögulegt er," segir í bókun sveitarstjórnar.   Jafnframt að það sé skoðun sveitarstjórnar „að þessi mál beri að leysa öll í samhengi og fyrirtækin Flokkun og Molta þurfi að hafa frumkvæði um lausn þeirra."

Þá kemur einnig fram að auka þurfi mannafla tímabundið til að stefnumótun gangi hraðar og þá annað hvort með aðkeyptri vinnu eða að fleiri menn verði ráðnir til starfa. „Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar leggur til að þetta verði gert hið fyrsta og telur það forsendu fyrir því að sveitarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu verði í farabroddi hvað varðar flokkun, endurvinnslu og meðhöndlun sorps."

Nýjast