"Sú ákvörðun nefndarinnar að sameina leikskólana var tekin án vitneskju flestra bæjarfulltrúa og teljast það afar sérkennileg
vinnubrögð að taka jafn afdrifaríka ákvörðun án nokkurs faglegs undirbúnings og pólitískrar umræðu. Þessi
niðurstaða nefndarinnar er svar við ósk foreldra á leikskólanum Pálmholti um umbætur í salernismálum einnar deildar og verður
málsmeðferð skólanefndar að teljast með ólíkindum. Sameining tveggja skóla er viðkvæmt ferli og verður aldrei framkvæmt nema
með vandlegum og faglegum undirbúningi en ekki vegna innkomins erindis foreldra. Ég skora á skólanefnd að endurskoða ákvörðun
sína," segir í bókun Jóhannesar.
Í bókun, sem Elín Margrét Hallgrímsdóttir formaður skólanefndar lagði fram á fundi bæjarráðs, kemur fram að
skólanefnd hafi í störfum sínum undanfarið leitað allra leiða til hagræðingar í rekstri skólanna án þess að
það komi niður á gæðum skólastarfs. Í því sambandi sé umrædd tillaga skólanefndar sett fram.