23. nóvember, 2009 - 16:44
Lögreglan á Akureyri upplýsti um helgina alls 28 innbrots- og þjófnaðarmál sem hafa átt sér stað á Akureyri undanfarnar
vikur. Um var að ræða fjóra pilta á aldrinum 17-19 ára og nutu þeir aðstoðar þess fimmta í nokkrum tilvikum. Þeir brutust m.a.
þrisvar sinnum inn í vélageymslu Golfklúbbs Akureyrar að Jaðri, fjórum sinnum í húsnæði skátafélagsins að
Hömrum, tvisvar sinnum inn í Fjölsmiðjuna, fimm sinnum inn í ísbíl í eigu Emmess, tíu sinnum fóru þeir inn í gám
við skemmtistaðinn Amor og tóku þar talsvert magn af tómum drykkjarumbúðum sem þeir svo fengu greitt fyrir hjá Endurvinnslunni.
Auk þessa stálu þeir bensíni af þremur vélsleðum og einum dekkjagangi undan bifreið þar sem hún stóð í
Glerárhverfi. Í þessum málum stálu piltarnir m.a. fjórhjóli, ýmsum verkfærum, um 400 lítrum af eldsneyti, sælgæti,
talsverðu magni af ís, smámynnt og ýmsum smáhlutum. Auk þessa unnu þeir talsverðar skemmdir m.a. með því að aka golfbíl og
sláttutraktor út í tjörn og skurð, unnu skemmdir á kælikassa ísbílsins, brutu rúður, spenntu upp glugga og
eyðilögðu peningaskáp. Piltarnir játuðu brot sín við yfirheyrslur hjá lögreglunni en allir hafa þeir komið við sögu hjá
lögreglu áður.