Þá voru einnig upplýst tvö innbrot í fyrirtækið Verkval á Akureyri sem áttu sér stað í nóvember s.l. Þar voru þrír drengir einnig á aldrinum 17-19 ára að verki. Einn þeirra var einnig viðriðinn innbrotið í Vaglaskógi. Í Verkvali var stolið ýmsum verkfærum, tölvubúnaði og ýmsu smádóti svo sem fjarðstýrðum leikfangabílum. Einnig voru unnar nokkrar skemmdir á hurðum, gluggum og tölvubúnaði. Allir hafa þessi piltar komið við sögu lögreglu áður. Lögreglan á Akureyri hefur þar með upplýst 31 innbrots- og þjófnaðarmál á s.l. þremur vikum.