01. febrúar, 2010 - 09:49
Lögreglan á Akureyri rannsakar nú stórfelldan þjófnað á GPS-staðsetningartækjum í bænum um helgina. Brotist var inn í
ellefu bíla og var slíkum tækjum skolið úr flestum þeirra. Flest innbrotin voru í Lundarhverfi en annars fóru þjófarnir um allan
bæinn, brutu hliðarrúður í bílum og létu greipar sópa.
Lögreglan brýnir fyrir fólki að hafa GPS-tæki og önnur verðmæti ekki sýnileg. Stinga megi GPS-tækjunum í hanskahólfið
verði því við komið. Þetta kemur fram á vef Ríkisútvarpsins.