Ljósgjafinn í þrot

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað eignarhaldsfélagið B10 eignir á Akureyri gjaldþrota.

Félagið rak Ljósgjafann, sem sérhæfði sig í raftækjum. Starfsmenn eru liðlega þrjátíu, flestir starfa á verkstæði.

Versluninni hefur verið lokað, en verkstæðið er áfram starfrækt. Eftir því sem Vikudagur kemst næst skýrast línur á næstu dögum um kaup aðila á verkstæðinu.

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast