Jón Hlöðver er fæddur og uppalinn á Akureyri. Tónlistarnám stundaði hann fyrst við Tónlistarskólann á Akureyri, svo við Tónlistarskólann í Reykjavík þaðan sem hann lauk söngkennaraprófi (tónmenntakennaraprófi) vorið 1967. Framhaldsnám í tónlist stundaði Jón Hlöðver síðan við Mozarteum akademíuna í Salzburg Austurríki - Orff Institut 1967- 69 og við tónlistarháskólann í Hannover í Þýskalandi 1969-70. Haustið 1970 gerðist hann kennari við Tónlistarskólann á Akureyri og síðar skólastjóri við sama skóla 1974-1982 og aftur frá 1984-1991. Á árunum 1982-84 starfaði hann sem námsstjóri tónlistarskólanna við Menntamálaráðuneytið. Framkvæmdastjóri Kammerhljómsveitar Akureyrar var hann í sex ár. Hann var valinn bæjarlistamaður Akureyrar árið 1990 og hlaut síðar fjögurra ára starfslaun úr Tónskáldasjóði. Jón Hlöðver hefur auk tónsmíða verið þátttakandi í félagsstörfum á ýmsum sviðum og hefur um árabil verið formaður Jazzklúbbs Akureyrar og ritari í stjórn Sjálfsbjargar á Akureyri. Hann var um 6 ára skeið formaður stjórnar Sjálfsbjargarheimilisins í Reykjavík og stjórnarmaður í Gilfélaginu frá stofnun félagsins 1991 til ársins 2008. Hann kvæntist Sæbjörgu Jónsdóttur í júní 1969 og eiga þau þrjú börn og sjö barnabörn.
Daníel Þorsteinsson stundaði sitt tónlistarnám í fæðingarbæ sínum, Neskaupstað, við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Tónlistarskólann í Reykjavík. Famhaldsprófi lauk hann frá Sweelinck tónlistarháskólanum í Amsterdam árið 1993. Daníel hefur komið fram víða um heim í einleik og samleik. Margrét Bóasdóttir er fædd og uppalin í Mývatnssveit. Hún lauk almennu kennaraprófi, tónmenntakennaraprófi og burtfararprófi í einsöng og stundaði síðan framhaldsnám í Þýskalandi og lauk einsöngskennaraprófi og lokaprófi í einsöng ásamt sérnámi í ljóða- og óratoríusöng.