Líkamsárás og innbrot á Akureyri

Mikill erill var hjá lögreglunni á Akureyri í nótt en margir gestir eru samankomnir í bænum vegna Bíladaga. Ein líkamsárás var tilkynnt og var einn fluttur á slysadeild í kjölfar árásinnar með sjúkrabifreið með minniháttar meiðsli. Þá var tilkynnt um innbrot í kaffihús í miðbænum. Þegar lögreglan kom á staðinn var einn aðili þar innandyra og var hann handtekinn og gistir nú fangageymslu. Tíu voru kærðir fyrir of hraðan akstur en flestir voru teknir á hringveginum í Öxnadal á leiðinni til Akureyrar. Sá sem hraðast ók var á 173 km/klst hraða.

Lögreglan sinnti einnig nokkrum útköllum vegna kvartana yfir hávaða, bæði hávaða frá samkvæmum í heimahúsum og svo hávaða frá bílaumferð en nokkuð mikið var um spyrnukeppnir á götum bæjarins. Mikið var um að menn voru að spóla á bifreiðum sínum á götum og bifreiðastæðum og hafði lögreglan afskipti af þó nokkuð mörgum ökumönnum vegna þessa. Þá sinnti lögreglan mörgum öðrum smærri verkefnum.

Nýjast