Lífdísilverksmiðja Orkeyjar á Akureyri formlega vígð

Nú fyrir stundu var ný lífdísilverksmiðja Orkeyjar á Akureyri formlega vígð, að viðstöddu fjölmenni. Verksmiðjan er til húsa að Njarðarnesi 10 en það var bæjarstjórinn á Akureyri, Eiríkur Björn Björgvinsson, sem vígði verksmiðjuna með því að klippa á borða.  

Nýsköpunarfyrirtækið  Orkey mun í þessum mánuði hefja framleiðslu á vistvænu eldsneyti - lífdísil -  sem er að mestu unnið úr úrgangssteikingarolíu og dýrafitu, en einnig úr öðrum úrgangi. Stefnt er að framleiðslu á 300 tonnum af lífdísil á fyrsta starfsárinu og er áætlað að fyrst um sinn muni starfsemi Orkeyjar skapa 2-3 ársverk auk nokkurra afleiddra starfa.

Fyrirtækið Orkey ehf. var stofnað í febrúar árið 2007 og hefur síðan þá kannað ýmsa möguleika á framleiðslu lífdísils,  jafnt úr erlendu sem innlendu hráefni. Tilgangur Orkeyjar er að stuðla að sjálfbærri framleiðslu og notkun endurnýjanlegra orkugjafa og mun fyrirtækið leitast við að taka þátt í framförum á því sviði. Hluthafar Orkeyjar eru þrettán talsins. Þeir eru Aura Mare, N1, Stofnverk, Tækifæri, Arngrímur Jóhannsson, Hafnasamlag Norðurlands, Mannvit, Norðurorka, Brim, HB Grandi, Höldur, Ágúst Torfi Hauksson og LÍÚ.

Nýjast