Leikskólinn Pálmholt fagnar 60 ára afmæli á morgun

Á morgun, föstudaginn 11. júní, fagnar leikskólinn Pálmholt á Akureyri 60 ára afmæli sínu. Í dag eru stöðugildi við Pálmholt 13,50, starfsmenn eru 16 og börnin 60 talsins. Leikskólinn er elsti starfandi leikskóli á landsbyggðinni og var upphaflega byggður af kvenfélagskonum í kvenfélaginu Hlíf. Húsið var byggt í áföngum á árunum 1948 - 1960. Konurnar voru afar framtakssamar og framsýnar og vildu láta gott af sér leiða í samfélaginu.  

Í tilefni þessa merka áfanga verður efnt til afmælisfagnaðar á afmælisdaginn.  Dagskráin hefst kl. 9.10 í fyrramálið með fánahyllingu og söng. Í kjölfarið munu elstu börnin gróðursetja berjarunna sem foreldrafélagið gefur skólanum í afmælisgjöf. Formleg dagskrá hefst svo kl. 10.30, þar sem boðið verður upp á söng og tónlistarflutning, ávörp verða flutt og þar verður einnig grillveisla. Milli kl. 15 og 17 verður svo opið hús fyrir bæjarbúa, myndasýning verður úr starfinu og Magni Ásgeirsson mun stjórna brekkusöng kl. 15.30.

Þá hefur verið settt upp sýning á Amtsbókasafninu, þar sem má skoða söguna í máli og myndum og stendur hún til 30. júní.

Nýjast