Leikjum dagsins í íshokkíinu frestað

Búið er að fresta tveimur leikjum á Íslandsmótinu í íshokkí sem fara áttu fram í Skautahöllinni á Akureyri í dag og í kvöld. Annars vegar er það leikur SA Víkinga og SR í karlaflokki og hins vegar leikur SA Valkyrja og SR í kvennaflokki. Leikjunum tveimur er frestað um óákveðin tíma. Slæm veðurspá var fyrir daginn í dag víða um land og varað við ferðalögum. Hins vegar er leikur KA og HK í 1. deild karla í blaki enn á dagskrá eftir því sem næst er komist en sá leikur hefst klukkan 16:00 í KA-heimilinu. 

Nýjast