Leikir Íslands á EM í handbolta sýndir á breiðtjaldi í KA-heimilinu

Strákarnir okkar, í íslenska handboltalandsliðinu, hefja leik á Evrópumeistaramótinu í Austurríki í kvöld og hefst bein útsending í Sjónvarpinu kl. 19.05. Gríðarleg eftirvænting er ríkjandi meðal landsmanna, sem munu fylgjast grannt með leikjum íslenska liðsins. Í KA-heimilinu verður EM stemmning ríkjandi næstu daga, því þar ætla aðalstjórn og unglingaráð handknattleiksdeildar félagsins að sýna leiki Íslands á breiðtjaldi.  

Markmið KA-manna er að búa til góða stemmningu í kringum leiki íslenska liðsins. Byrjað verður á að sýna leiki íslenska liðisins i riðlakeppninni og svo verður haldið áfram þar til strákarnir okkar hafa lokið keppni. Hálftíma fyrir leik í kvöld, ætlar Jónatan Magnússon handknattleiksmaður hjá Akureyri handboltafélagi að tala aðeins um vonir og væntingar sínar til landsliðsins á mótinu. Næsti leikur er svo fimmtudaginn 21. janúar á móti Austurríkismönnum kl.16.40 og síðasti leikurinn í riðlinum er laugardaginn 23. janúar gegn Dönum kl.19.05. Árangurinn í riðlinum ræður svo framhaldinu en að sjálfsögðu er gert ráð fyrir því að strákarnir okkar fari alla leið og verður  fylgst með þeim í beinum útsendingum í KA-heimilinu. Fyrir leikina verða tilboð á léttum veitingum við allra hæfi, t.d. pizzur og gos. Foreldrar eru hvattir til að mæta og taka börnin sín með.

Nýjast