Lára ráðin skólameistari við nýjan framhaldsskóla í Eyjafirði

Lára Stefánsdóttir menntunarfræðingur hefur verið ráðin skólameistari við nýjan framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð, sem starfræktur verður í Ólafsfirði. "Mér líst vel á þetta og það verður gaman að fást við það verkefni að koma á fót nýjum skóla," sagði Lára í samtali við Vikudag en hún var ráðin úr hópi 9 umsækjenda um stöðuna.  

Lára er ráðin í stöðuna frá og með gærdeginum 1. mars en ráðgert að framhaldsskólinn taki til starfa næsta haust. Lára segir að þetta verði eyfirskur framhaldsskóli með tengingu við framhaldsskólana á Akureyri. Það er  menntamálaráðherra sem skipar í stöðuna.

Nýjast