Landsliðskonurnar Katrín Ómarsdóttir og Þóra B. Helgadóttir munu heimsækja nokkur bæjarfélög á norðaustur- og austurlandi dagana 20.-23. júlí og stýra þar æfingum fyrir ungar knattspyrnustelpur.
Þóra hefur undanfarin ár skipað sér sess sem einn fremsti markvörður Evrópu og leikur sem atvinnumaður með besta félagsliði Svíþjóðar, LdB Malmö. Katrín Ómarsdóttir er einn fjögurra Íslendinga sem leikur með Kristianstads DFF og hefur skorað tvö mörk í átta leikjum á yfirstandandi tímabili. Þóra á að baki 74 landsleiki fyrir A-landslið kvenna og Katrín 32 landsleiki. Það er því ljóst að þær stöllur búa yfir mikilli reynslu sem þær munu miðla af til stelpnanna á ferð sinni um norðaustur- og austurland.
Þær Þóra og Katrín verða á Akureyri föstudaginn 23. júlí næstkomandi og verða með eftirfarandi æfingar:
10:00-11:30 Æfing hjá Þór 5. 6. og 7. flokkur kvenna
14:00-15:30 Æfing hjá KA 5. 6. og 7. flokkur kvenna
16:45-17:15 Fyrirlestur fyrir 3. og 4. flokk kvenna hjá KA
17:30-19:00 Æfing hjá KA 3. og 4. flokkur kvenna