Nú er lokið fjögurra mánaða rekstraruppgjöri og fyrir liggja tölur um starfsemi fyrir fimm mánuði. Hvort tveggja ætti að gefa nokkuð góða vísbendingu um hvert stefnir á árinu hvað varðar rekstur og þjónustustig, segir Vignir Sveinsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Sjúkrahússins á Akureyri í pistli á heimasíðu FSA. Kostnaður er um 25 milljónir umfram fjárveitingu í apríllok eða 1,7%, en um leið hefur starfsemin aukist á flestum sviðum. Þar ber hæst mikla fjölgun fæðinga sem sannarlega er okkur öllum gleðiefni. Kostnaðarauki í rekstrinum liggur aðallega í almennum rekstrargjöldum, svo sem lyfjum, lækningavörum og aðkeyptri þjónustu.
Vignir segir að í rekstraráætlun ársins hafi verið gert ráð fyrir lækkun kostnaðar um 130 milljónir með tilheyrandi fækkun starfa. Þótt vissulega hafi að mörgu leyti tekist vel til við að mæta hagræðingarkröfum þurfi sífellt að vera á varðbergi gagnvart öllum kostnaði sem ekki hefur bein áhrif á öryggi og þjónustu og reyna að lágmarka hann. Markmið okkar í rekstri þessa árs er að kostnaður verði ekki meiri en 40 milljónir umfram fjárlög sem samsvarar jákvæðum höfuðstól í árslok 2011. Takist það og ekki verði um frekari hagræðingarkröfu að ræða í fjárlögum 2013 er ekki ástæða til annars en að við séum bjartsýn, segir Vignir.