Um 30% höfuðborgarbúa eru með háskólamenntun en á landsbyggðinni eru það um 20%. Ég er ekki í vafa um að aukið menntunarstig á landsbyggðinni mun skila sér í auknum atvinnutækifærum þar. Háskólin á Akureyri á því mikið verk fyrir höndum, segir Stefán B. Sigurðsson rektor Háskólans á Akureyri.
Hann segir að kynjaskipting háskólamenntaðra hafi þróast í óæskilega átt.
Háskólamenntun voru forréttindi karla á fyrri hluta síðustu aldar. Þetta hefur sem betur fer breyst en nú stefnir þróunin hraðbyr í hina áttina. Rúmlega 20% karla eru með háskólamenntun í dag en um 30% kvenna. Nýlegar hagtölur sýna að þessi munur er enn meiri í yngri aldursflokkunum eða að rúmlega 40% kvenna á aldrinum 25-29 ára hafa lokið háskólamenntun en einungis rúmlega 20% karla. Þetta er umhugsunarverð þróun og algjör nauðsyn að bregðast við henni.
karleskil@vikudagur.is