Kleifarberg ÓF með 300 milljónir króna í aflaverðmæti

Frystitogarinn Kleifarberg ÓF úr Ólafsfirði, sem er í eigu Brims hf., er þessa stundina að leggjast að bryggju í Reykjavík, eftir fjögurra vikna veiðiferð í Barentshafið. Aflaverðmæti togararns er um 300 milljónir króna og afli upp úr sjó ríflega 1000 tonn. Uppistaða aflans er þorskur. Þetta mun vera mesta aflaverðmæti sem skip í eigu Brims hefur komið með að landi.  

Mjög góð veiði hefur verið í Barentshafi að undanförnu og hafa fleiri íslensk skip verið að koma að landi með gríðarlegt aflaverðmæti. Á dögunum kom frystitogarinn Venus með um 330 milljónir króna í aflaverðmæti úr Barentshafi og frystitogarinn Arnar HU frá Skagaströnd var með um 260 milljónir króna í aflaverðmæti.  

Nýjast