KKA fá úthlutað keppnis- og æfingasvæði á Glerárdal

Meirihluti umhverfisnefndar Akureyrar leggst ekki gegn því að KKA verði úthlutað  keppnis- og æfingasvæði á Glerárdal fyrir enduroakstur. Þó vill nefndin að svæðinu verði aðeins úthlutað til bráðabirgða í t.d. 5 ár og þá verði þessi ákvörðun tekin til endurskoðunar í ljósi reynslunnar. Nefndin leggur á það áherslu að gætt verði hófs í röskun lands og KKA verði gert að gæta fyllsta öryggis og að landi verði alls ekki raskað utan brauta. Til greina kemur að láta girða svæðið af við Hlíðarfjallsveg.  

Umhverfisnefnd telur að ekki komi til greina að leggja meira land undir þessa starfsemi á þessu svæði og að tryggt verði að þeir sem eiga hagsmuna að gæta t.d. Skotfélagið og aðrir séu sáttir við þessi áform. Petrea Ósk Sigurðardóttir og Klara Sigríður Sigurðardóttir sátu hjá við afgreiðslu og óskuðu bókað að þær gætu ekki fallist á tillöguna að svo komnu máli og óskuðu eftir frekari skoðun á málinu.


       

Nýjast